Barþjónaþjónusta á höfuðborgarsvæðinu
Barþjónn í veisluna frá 8.990 kr. á klst.
Leigðu reyndan barþjón sem blandar kokteila, hellir í glösin og heldur barnum í röð og reglu. Þú sinnir gestunum á meðan. Verðið er á klukkustund og það er enginn pakki sem þú þarft að kaupa.
Eða hringdu í 778 8817. Við svörum alla daga kl. 08–22.


Afmæli · 30 gestir · m/VSK
- Minnst 2 ára reynslaFlestir hafa verið yfirbarþjónar
- 8.990 kr. á klst.Með VSK · lágmark 2 klst.
- Svar innan sólarhringsBókunin staðfest um leið
- Reikningur á kennitöluFyrir fyrirtæki
Barþjónaþjónusta
Barþjónar í veislu: þetta gera þeir og þetta leggur þú til
Hver barþjónn hefur staðið minnst tvö ár á bar og flestir hafa gegnt starfi yfirbarþjóns.
Barþjónninn
- Blandar kokteila, líka óáfenga, og hellir í glösin
- Þjónar gestunum allan tímann sem þú bókar
- Kemur með hristara, mæli (jigger), sigti og barskeið
- Sér um að barinn sé hreinn og gengur frá honum þegar vaktinni lýkur
- Skipuleggur seðilinn og magnið með þér áður en veislan hefst
Þú leggur til
- Drykkina
- Klakann
- Aðgang að rennandi vatni
- Borð eða pláss undir barinn
RentEvent leigir ekki út barborð. Eldhúsborð, skenkur eða langborð gerir sama gagn.
Svona virkar þetta
Svona leigir þú barþjón
- Á netinu
Þú bókar
Veldu dag, fjölda barþjóna og klukkustundir á rentevent.is og greiddu. Bókunin er staðfest strax.
- Innan sólarhrings
Við höfum samband
Við förum saman yfir seðilinn og hve mikið þarf af hverju, svo ekkert vanti á barinn.
- Veisludagurinn
Barþjónninn mætir
Hann kemur á umsömdum tíma með barbúnaðinn og tekur við barnum.
- Í lok vaktar
Gengið frá
Barþjónninn skilur við barinn snyrtilegan. Þú átt bara eftir að kveðja gestina.
Er veislan í dag? Hringdu fyrst í 778 8817. Fyrirtæki sem vilja reikning á kennitölu senda fyrirspurn.
Verð
Hvað kostar að leigja barþjón?
Barþjónn kostar 8.990 kr. á klukkustund, með VSK. Lágmarkið er tvær klukkustundir, eða 17.980 kr. fyrir einn barþjón.
Þú greiðir fyrir tímann sem barþjónninn stendur við barinn. Ef veislan dregst á langinn reiknast hver byrjuð hálf klukkustund.
Öll verð með VSK
Tilefni
Barþjónn í brúðkaup, afmæli, fermingu og fleiri veislur
Aukahlutir
Glös, bjórdæla og síróp með barþjóninum
Barþjónninn kemur með barbúnaðinn. Annað sem barinn þarf færðu hjá RentEvent.

Glös til leigu
Fimm gerðir: bjór-, vín-, kokteil-, highball- og lowball-glös. Þeim er skilað óþvegnum.
frá 190 kr. á glas á dag

Bjórdæla
Kæld dæla með innbyggðri loftdælu. Ekkert CO₂ og passar á S- og A-kúta.
14.990 kr. á dag

Síróp, safar og mixerar
Síróp, ástaraldin-puré, safar, óáfengir mixerar, froðuefni og þurrkaðir ávextir til sölu.
Verð á rentevent.is
Flutningur búnaðarins til þín og til baka er frír á höfuðborgarsvæðinu þegar pöntunin fer yfir 10.000 kr.
Umsagnir á Google
Það sem gestgjafarnir segja
„Strákarnir frá RentEvent stóðu sig frábærlega á barnum í veislu sem við hjónin vorum að halda. Þetta var breytt aldursbil gesta í veislunni en allir töluðu um hvað barþjónarnir voru flottir og kurteisir. Við gefum þeim 100% meðmæli.“
„Pantaðu hjá þeim 1 barþjón og nokkur vín glös og kokteila glös. Geggjuð þjónusta frábær barþjónn líka sem kunni að gera alla kokteila sem við vildum.“
Hve marga barþjóna þarf ég?
Miðaðu við einn barþjón á hverja 35 gesti. Mæti margir í einu, til dæmis í fordrykk, borgar sig oft að hafa fleiri í byrjun.
Hvað er lágmarksbókun?
Tvær klukkustundir. Það kostar 17.980 kr. með VSK fyrir einn barþjón.
Koma barþjónarnir með drykkina?
Nei. Drykkirnir, klakinn og vatnið koma frá þér. Barþjónninn tekur með sér verkfærin, og við skipuleggjum seðilinn og magnið með þér fyrir veisluna.
Á hvaða svæði eruð þið?
Á öllu höfuðborgarsvæðinu: í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi. Er veislan lengra frá? Hafðu samband.
Hvað gerist ef barþjónninn forfallast?
Þá sendum við annan barþjón í staðinn. Ef það tekst ekki færðu fulla endurgreiðslu.
Er hægt að bóka barþjón samdægurs?
Hringdu fyrst í 778 8817 og við athugum hvort barþjónn sé laus.
Bókun
Bókaðu barþjón í veisluna
Þú bókar og greiðir á rentevent.is og færð staðfestingu strax. Viltu frekar ræða málin fyrst? Sendu fyrirspurn eða hringdu.
Sími 778 8817 · bokanir@rentevent.is
