Barþjónar frá RentEvent Svar innan sólarhrings · 4,9 af 5 á Google English · 778 8817

Fyrir fyrirtæki

Barþjónn á árshátíðina og í starfsmannapartýið

Árshátíð í sal, föstudagsgleði á skrifstofunni eða móttaka fyrir viðskiptavini. Barþjónarnir sjá um barinn og fyrirtækið getur fengið reikning á kennitölu.

  • 8.990 kr. á klst. á barþjón
  • Lágmark 2 klst.
  • Svar innan sólarhrings
Barþjónn frá RentEvent við glugga í fyrirtækjaveislu
Reikningur á kennitöluSendu fyrirspurn og taktu það fram.

Barþjónn fyrir fyrirtæki

Starfsfólkið á að geta notið kvöldsins, líka sá sem skipulagði það. Barþjónninn tekur við barnum þegar fyrstu gestirnir koma og gengur frá honum í lok vaktar.

  • Reikningur á kennitölu fyrirtækisins
  • Einn barþjónn á hverja 35 gesti, fleiri ef margir mæta í einu
  • Óáfengir kokteilar fyrir þá sem keyra eða kjósa að sleppa áfengi
  • Ábyrg afgreiðsla: barþjónar mega neita að afgreiða ölvaða gesti

Sjá líka kokteilaþjónustu og verðtöflu.

Barþjónn frá RentEvent blandar kokteila á bar í veislu

Móttökur, opnanir og viðburðir

Í móttöku standa gestirnir og vilja drykk strax. Þar skiptir mestu að barþjónarnir séu nógu margir fyrsta hálftímann. Segðu okkur hvernig dagskráin er og við förum yfir fjöldann og drykkjaseðilinn með þér.

Dæmi · árshátíð, 100 gestir
3 barþjónar× 4 klst.
Verð á klst.8.990 kr.
Samtals m/VSK107.880 kr.

Dæmi um verð

Starfsmannapartý: hugmyndir

  • Kokteilakvöld á skrifstofunni

    Barþjónn blandar tvo til þrjá kokteila eftir seðli sem hópurinn velur. Einn þeirra óáfengur.

  • Þemakvöld

    Veljið þema, til dæmis liti fyrirtækisins eða ákveðinn áratug, og látið seðilinn fylgja því.

  • Jólagleði og sumarfögnuður

    Sama fyrirkomulag hentar jólagleðinni í desember og sumarfagnaðinum í júní. Sjá jólaboð og þorrablót.

  • Móttaka eftir fund

    Stutt vakt, minnst tvær klukkustundir, þar sem gestirnir fá drykk og tækifæri til að spjalla.

  • Óáfengur bar

    Á viðburðum á vinnutíma getur bar með óáfengum kokteilum einum verið besti kosturinn.

Svona bóka fyrirtæki barþjón

  1. Fyrirspurn

    Sendu okkur línu

    Dagsetningu, gestafjölda og hvenær barinn opnar og lokar. Taktu fram ef þið viljið reikning á kennitölu.

  2. Innan sólarhrings

    Við svörum

    Við förum yfir drykkjaseðilinn og magnið með ykkur.

  3. Viðburðurinn

    Barþjónarnir mæta

    Á umsömdum tíma, með barbúnaðinn.

Viljið þið frekar greiða strax? Þá bókið þið á rentevent.is og bókunin er staðfest um leið. Annan búnað fyrir fyrirtækjaviðburði er að finna á fyrirtækjasíðu RentEvent.

Algengar spurningar

Spurningar fyrirtækja

Getur fyrirtækið greitt með reikningi?

Já, reikningurinn er gefinn út á kennitölu fyrirtækisins. Sendu fyrirspurn og taktu það fram.

Hve marga barþjóna þarf á árshátíð?

Reiknið með einum barþjóni á hverja 35 gesti. Á 100 manna árshátíð eru þrír barþjónar góð byrjun.

Komið þið með áfengið?

Nei. Fyrirtækið útvegar drykki, klaka og vatn. Við förum yfir magnið með ykkur fyrir viðburðinn.

Getur barþjónninn mætt fyrr og sett upp barinn?

Já, eftir samkomulagi. Sá tími reiknast eins og tíminn við barinn.

Hvað ef gestur er orðinn of ölvaður?

Barþjónar mega neita að afgreiða ölvaða og gesti yngri en 20 ára. Það er hluti af ábyrgri afgreiðslu.

Árshátíð eða starfsmannapartý fram undan?

Sendu fyrirspurn og fáðu reikning á kennitölu, eða bókaðu og greiddu strax á rentevent.is. Hringja: 778 8817