Barþjónar frá RentEvent Svar innan sólarhrings · 4,9 af 5 á Google English · 778 8817

Brúðkaup · barþjónn í brúðkaupsveislu

Barþjónn í brúðkaupið

Á brúðkaupsdaginn eigið þið að vera með gestunum, ekki fyrir aftan barinn. Barþjónninn tekur á móti fólki með fordrykk, blandar kokteila og heldur röðinni gangandi fram á kvöld.

  • 8.990 kr. á klst. á barþjón
  • Lágmark 2 klst.
  • Svar innan sólarhrings
Vínglös, kokteilaglös og vatnsglös á borði í upplýstu veislutjaldi
Einn á hverja 35 gestiViðmið um fjölda barþjóna. Fleiri ef margir mæta í einu.

Hvað gerir barþjónn í brúðkaupsveislu?

Flestar brúðkaupsveislur skiptast í þrjá hluta: móttöku þegar gestirnir mæta, borðhald með ræðum og svo dans fram eftir kvöldi. Barþjónninn lagar sig að dagskránni ykkar.

  • Fordrykkurinn er tilbúinn þegar fyrstu gestirnir ganga inn
  • Kokteilar og aðrir drykkir eftir seðlinum ykkar, líka óáfengir
  • Barinn er hreinn og snyrtilegur allt kvöldið
  • Gengið er frá barnum þegar vaktinni lýkur
Barþjónn frá RentEvent blandar kokteila á bar í veislu

Drykkir í brúðkaup: seðill fyrir alla gesti

Í brúðkaupum er aldursbilið oft breitt, frá börnum upp í langafa og langömmu. Gott er að halda seðlinum stuttum: tveir til þrír kokteilar, það sem þið viljið bjóða að auki, og að minnsta kosti einn óáfengur kokteill sem er jafn vandaður og hinir.

Mörg brúðhjón velja drykk sem er kenndur við þau sjálf. Hann getur ratað á seðilinn þegar við förum yfir drykkina og magnið með ykkur fyrir brúðkaupið.

Drykkirnir, klakinn og vatnið koma frá ykkur. Síróp, ástaraldin-puré, safa og óáfenga mixera má kaupa hjá RentEvent. Sjá líka kokteilaþjónustu.

Hve marga barþjóna þarf í brúðkaup?

Gott er að reikna með einum barþjóni á hverja 35 gesti. Í brúðkaupi mæta flestir gestir á sama tíma og vilja fordrykk strax, svo þar getur borgað sig að hafa fleiri í byrjun.

50 gestir2 barþjónar
80 gestir3 barþjónar
120 gestir4 barþjónar

Fleiri dæmi eru í verðtöflunni.

Dæmi · brúðkaup, 80 gestir
3 barþjónar× 5 klst.
Verð á klst.8.990 kr.
Samtals m/VSK134.850 kr.

Dæmi um verð

Tímasetning og uppsetning

Klukkustundirnar sem þið bókið eru tíminn við barinn. Viljið þið að barþjónninn mæti fyrr og stilli upp barnum áður en gestirnir koma? Það er gert eftir samkomulagi og reiknast sem tími.

Dragist veislan á langinn má framlengja vaktina. Þá reiknast hver byrjuð hálf klukkustund.

Glös og bjórdæla í brúðkaupið

Kokteilaglös, vínglös og bjórglös fást leigð hjá RentEvent og þið skilið þeim óþvegnum. Eigi bjór að vera á dælu hentar bjórdælan vel. Sjá glös til leigu.

Annan búnað fyrir brúðkaupið finnið þið á brúðkaupssíðu RentEvent.

Umsögn á Google

Frá hjónum sem héldu veislu

4,9 af 5 · 31 umsögnSjá umsagnir á Google
„Strákarnir frá RentEvent stóðu sig frábærlega á barnum í veislu sem við hjónin vorum að halda. Þetta var breytt aldursbil gesta í veislunni en allir töluðu um hvað barþjónarnir voru flottir og kurteisir. Við gefum þeim 100% meðmæli.“
Guðrún GunnlaugsdóttirGoogle-umsögn

Algengar spurningar

Spurningar um barþjón í brúðkaup

Hvað kostar barþjónn í brúðkaup?

8.990 kr. á klukkustund á hvern barþjón, með VSK. Tveir barþjónar í fimm klukkustundir kosta til dæmis 89.900 kr.

Hvenær á barþjónninn að mæta?

Það fer eftir dagskránni. Oftast er best að barinn sé tilbúinn þegar fyrstu gestirnir mæta. Uppsetning fyrir þann tíma er eftir samkomulagi og reiknast sem tími.

Getur barþjónninn gert óáfenga kokteila í brúðkaupinu?

Já. Barþjónarnir blanda óáfenga kokteila jafnt sem aðra og það er sjálfsagt að hafa þá á seðlinum.

Hvað þurfum við að útvega?

Drykki, klaka, vatn og borð undir barinn. Barþjónninn sér um verkfærin.

Hvað ef brúðkaupið er utan höfuðborgarsvæðisins?

Við þjónum höfuðborgarsvæðinu. Sé veislan lengra frá, hafðu samband og við skoðum málið.

Er brúðkaupsdagurinn ákveðinn?

Bókaðu barþjón á rentevent.is eða sendu okkur gestafjölda og dagskrá og við förum yfir málið með ykkur. Hringja: 778 8817